The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 78

1 Corinthians · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 78 of 174 · about 3 min

← Chapter 77Chapter 79 →

[ breyta] En eg vil eigi dylja fyrir yður, góðir bræður, það að vorir feður voru allir undir skýinu og allir gengu þeir yfir hafið. Allir eru þeir og skírðir af Moysen í skýinu og í sjánum. Og allir hafa þeir neytt hinnar sömu andlegrar fæðslu, og allir hafa þeir hinn sama andlega drykk drukkið. Þeir drukku og af þeirri andlegri hellu sem þeim með fylgdi, hver hella eð var Kristur. En á þeim vel flestum hafði Guð öngva þókknan. Því eru þeir niður slegnir á eyðimörku. * En þetta er skeð oss til fyrirmyndar svo að vér skulum eigi girnast hvað illt er svo sem að þeir girntust.

Gjörist og eigi blótmenn skurgoða líka svo sem nokkrir af þeim urðu eftir því sem skrifað er: Fólkið settist niður að eta og drekka og stóð upp að dansa. Drýgjum eigi hóranir svo sem nokkrir út af þeim drýgðu hóranir og féllu á einum degi þrjár þúsundir og tuttugu. Freistum og eigi Krists svo sem nokkrir út af þeim freistuðu hans og fyrirfórust af höggormum. Möglið og ekki líka svo sem nokkrir út af þeim mögluðu og fyrirfórust af vanvirðaranum. Þetta allt skeði þá til fyrirmyndar, en það er skrifað oss til viðvörunar, yfir hverja að þessa heims endi er kominn. Fyrir því hver hann lætur sér þykja það hann standi, gefi sá gaum að hann falli eigi.

Yður hefir enn ekki höndlað utan alleinasta mannleg freistni. En Guð er trúr, sá eigi umlíður það yðar sé freistað framar en þér formegið, heldur gjörir hann það að freistnin fái þann einn enda að þér getið vel staðist. * Hvar fyrir, mínir kærustu, flýið frá skurguðadýrkan. Svo sem við vitringa tala eg. Dæmið þér hvað eg segi. Sá blessanarkalekur, hvern vér blessum, er hann ekki samnautn Krists blóði? Og brauðið, hvert vér brjótum, er það eigi hluttekning Krists líkama? Því að það er eitt brauð, og vér margir erum einn líkami með því að vér verðum allir eins brauðs hluttakarar. Hyggið að þeim í Írael eftir holdinu það þeir sem fórnirnar eta, eru þeir ekki altarisins hluttakarar?

Hvað skal eg nú þá segja? Eða skal eg segja það skurgoðið sé nokkurs vert? Eða það skurgoðafórnir sé nokkurs verðar? En eg segi að það hvað hinir heiðnu offra, það offra þeir djöflinum og eigi Guði. Nú vil eg eigi að þér verðið samlagsmenn djöflanna. Eigi fái þér í senn drukkið kalek Drottins og djöfulsins. Þér getið og ekki í senn hluttakarar verið matborði Drottins og djöfulsins matborði. Eða vilju vér reita Drottin? Hvort eru vér honum sterkari? Mér leyfast sennilega allir hlutir, en þeir bata eigi allir. Mér leyfist allt, en það er eigi allt til uppreistar. Enginn spyrji að því hvað hans er, heldur að því hvað annars er.

Allt hvað í kjötmangarahúsinu er til sölu, það etið, eftir spyrjandi að öngu upp á það þér vægið samviskunni. Því að jörðin er Drottins og hennar fylling. En ef einhver af vantrúaðum býður yður til snæðings og þér viljið þangað ganga, þá etið það allt hvað fyrir yður verður sett og spyrjið einskis upp á það þér vægið samviskunni. En ef nokkur segir til yðar: Þetta er skurguðaoffur, þá etið ekki fyrir þess sakir sem það segir yður upp á það þér vægið samviskunni. Því að jörðin er að sönnu Drottins og hennar fylling. En eg segi af samviskunni, eigi af þinni sjálfs, heldur hins annars. Því að hvar fyrir skylda eg mitt frelsi dæmast láta af annarlegri samvisku?

Því ef eg neyti þess með þakklæti hvar fyrir skal eg þá lastaður verða um það sem eg gjöri þakkir fyrir? Hvort þér etið eður drekkið eða hvað þér gjörið, þá gjörið það allt til Guðs dýrðar. Verið utan hindran bæði Gyðingum og Grikkjum og Guðs safnaði líka svo sem eg gjörði mig hverjum manni þægilegan í öllu, eigi aðspyrjandi hvað mér, heldur hvað mörgum er gagnlegt svo að þeir hjálplegir yrði. Verið því mínir eftirfylgjarar svo sem eg em Krists.

← Chapter 77Chapter 79 →