1 Corinthians · Chapter 8
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 79 of 174 · about 3 min
[ breyta] Eg lofa yður, góðir bræður, það þér leggið mig í minni á allan hátt og haldið þann siðvana er eg setta yður. En það vil eg að þér vitið að Kristur er hvers manns höfuð, en konunnar höfuð er maðurinn, en höfuð Krists er Guð. Og hver sá maður sem biður eða spár með skýldu höfði, hann óvirðir sitt höfuð. Og hver sú kona sem biður eða spár með beru höfði, hún óvirðir sitt höfuð. Því að það er eins sem væri hennar höfuðhár burt rakað. Vill hún eigi skauta sér, þá rakist af hennar höfuðhár. En fyrst það er ljótt fyrir konuna að hafa af rekið hár eða sköllótt höfuð, þá faldi hún sér. En karlmaðurinn skal eigi falda höfuð sitt með því hann er Guðs mynd og sómi, en konan er mannsins sómi.
Því að maðurinn er eigi af konunni, heldur konan af manninum. Maðurinn er eigi skapaður vegna konunnar, heldur konan vegna mannsins. Þar fyrir skal konan hafa veldi á sínu höfði fyrir englanna sakir. En þó er hvorki maðurinn án konunnar né konan án mannsins í Drottni því að líka svo sem konan er af manninum, svo kemur og maðurinn fyrir konuna, en allir hlutir af Guði. Dæmi þér sjálfir yðar á milli hvort það hæfir konunni að biðja fyrir Guði óskautuð. Eða kennir yður það ekki náttúran sjálf að það sé lýti fyrir karlmanninn hann hafi sítt hár, en konunni að sönnu sómi það hún hafi síða lokka af því að hárið er henni til skýlingar gefið?
En ef sá er einhver yðar á milli sem þrætusamur vill vera, hann viti það vér höfum eigi þvílíkan siðvana og eigi heldur Guðs söfnuður. En þetta hlýt eg að bjóða, ekki hrósandi því það þér komið saman til betrunar, heldur til versnunar. Í fyrstu þá þér komið til samans í samkundunum, heyri eg að þar er sundranir yðar á milli, og eg trúi það sé og nokkurn deild. Því að þar hljóta ágreiningar að vera yðar á milli svo að þeir sem kjörnir eru, opinberir verði yðar á milli. Þá þér komið nú til samans, þá höldum vér þar eigi Drottins kveldmáltíð því að nær þér skuluð halda kveldmáltíðina, þá tekur hver yðar sína eiginlega fæðu áður fram, en annar er hungraður, hinn annar er drukkinn.
Hvort hafi þér engin hús þar þér kunnið að eta og drekka inni? Eða forsmái þér Guðs söfnuð og skammið þá sem ekkert hafa? Hvað skal eg segja yður? Skal eg lofa yður? Í þessu lofa eg yður ekki. Því það hvað eg hefi af Drottni meðtekið, það hefi eg yður fengið af því að Drottinn Jesús, á þeirri nótt er hann var svikinn, tók hann brauðið, gjörandi þakkir, braut það og sagði: Takið, etið. Þetta er minn líkami, sá fyrir yður verður gefinn. Gjörið það í mína minning. Líka einninn kalekinn eftir það hann hafði kveldmáltíðina etið, segjandi: Þessi kalekur er nýtt testament í mínu blóði. Gjörið þetta svo oft sem þér drekkið þar af í mína minning.
Því að svo oft sem þér bergið af þessu brauði og drekkið af þessum kalek, skulu þér kunngjöra þar með dauða Drottins þangað til hann kemur. Hver hann etur nú af þessu brauði og drekkur af þessum kalek Drottins óverðugt, sá er sekur við hold og blóð Drottins. En hver maður prófi sig sjálfur og eti svo af þessu brauði og drekki af þessum kalek. Því að hver hann etur og drekkur óverðugur, sá etur og drekkur sjálfum sér dóm með því hann gjörði eigi greinarmun Drottins líkama. Fyrir það eru svo margir sjúkir og veiklegir yðar á milli og þeir margir sem sofnaðir eru. Því ef vér dæmdum oss sjálfir, þá yrðu vér eigi dæmdir.
En nær vér dæmunst, þá verðu vér af Drottni tyftaðir upp á það vér fyrirdæmunst eigi meður þessum heimi. * Fyrir því, bræður mínir, nær þér komið til samans að neyta, þá bíði hver annars. En ef einhvern hungrar, þá eti sá heima svo að þér komið eigi saman til dómsáfellis. En hitt annað vil eg skikka þá eg kem.