1 Corinthians · Chapter 9
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 80 of 174 · about 3 min
[ breyta] Og af þeim andlegum gjöfum vil eg eigi dylja fyrir yður, góðir bræður. Þér vitið það þér voruð heiðnir og genguð burt til mállausra skurgoða sem þér urðuð til leiddir. Fyrir því kunngjöri eg yður það enginn sá sem fyrir Guðs anda talar, formælir Jesú, og enginn fær Jesúm Drottin kallað utan alleinasta fyrir heilagan anda. Sennilega eru gjafirnar margvíslegar, en hinn sami er andinn. Þar eru og margháttuð embætti, en hinn sami Drottinn. Þar eru margháttaðar verkanir, en hinn sami Guð er sem verkar alla hluti í öllum. En í sérhverjum einum auðsýna sig gjafir andans til allrar nytsemdar.
Einum verður gefið fyrir anda að mæla af visku, en öðrum verður gefið að tala af skynsemi af hinum sama anda, öðrum trúan í sömum anda, en hinum gjafir lækninganna í sömum anda, öðrum kraftaverk að gjöra, en öðrum að gjöra aðskiljanlega grein andanna, hinum öðrum margháttuð tungumál, en öðrum útlegging sagnanna. En allt þetta verkar einn og hinn sami andi, skiptandi sérhverjum eftir því sem hann vill. * Því að líka svo sem einn líkami er og hefir þó marga limu, en allir limir eins líkama, hversu margir sem að eru, þá eru þeir þó einn líkami, líka svo er Kristur.
Því að vér erum í einum anda allir í einn líkama skírðir hvort vér erum Gyðingar eður Grikkir, þrælar eður frelsingjar, og erum svo allir í einum anda drykkjaðir. Því að líkaminn er eigi einn limur, heldur margir. Og ef fóturinn segði: Engin hönd er eg, þar fyrir er eg ekki limur líkamans, skyldi hann nú því ekki vera líkamans limur? Og ef eyrað segði: Eg er eigi augað, þar fyrir er eg ekki limur líkamans, skyldi það sakir þess ekki vera líkamans limur? Því ef allur líkaminn væri augað, hvar væri þá heyrnin, hvar væri þá ilmingin? En nú hefir Guð sett limuna og hvern einn þeirra á líkamann svo sem hann hefir viljað. Og ef allir limirnir væri einn limur, hvar væri þá líkaminn?
En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn. Því að augað má eigi segja hendinni: Eg þarf þín eigi við, eða þar í mót höfuðið til fótanna: Eg þarf eigi yðar. Miklu heldur þeir limir líkamans sem oss sýnast breyskvastir vera, þeir eru nauðsynlegastir, og þá vér reiknum ótérugasta, þeim sömum leggjum vér mestan sóma til. Og þeir eð oss eru lýti að, virðu vér mest því að þeir sem oss prýða, þurfa þess eigi við. En Guð hefir líkamann svo saman tengt og gefið þeim nauðsynja limum hinn mesta sóma svo að engin ágreining sé á líkamanum, heldur það hver limurinn ber áhyggju fyrir öðrum.
Og ef einn limurinn líður, þá líða allir limirnir með og ef einum limnum verður sómi veittur, þá samfagna honum allir limirnir. En þér eruð Krists líkami og útlimir hver eftir sinni deild. Og Guð hefir sett í söfnuðinn í fyrstu postula, þá spámenn, í þriðja máta lærifeður, eftir það þá sem kraftaverkin gjöra, þar næst þá með lækningsgjafirnar, þá viðhjálparana, þá stjórnarana, þá margháttuð tungumálin. Eru þeir allir postular? Eru þeir allir spámenn? Eru þeir allir lærifeður? Eru þeir allir þeir menn sem kraftaverkin gjöra eða þeir sem lækningsgjöfina hafa? Tala þeir allir margháttuð tungumál? Kunna þeir allir út að leggja? Eftir fylgið nú hinum bestu gjöfunum.
Og þar til vil eg vísa yður veg þessum æðra.