The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 81

1 Corinthians · Chapter 10

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 81 of 174 · about 1 min

← Chapter 80Chapter 82 →

[ breyta] Þó að eg talaði tungur mannanna og englanna, en hefða ekki kærleikann, þá væri eg sem annar hljómandi málmur eður hvellandi bjalla. Og þó að eg hefða spádóm og vissi alla leynda hluti og alla skynsemi og hefði alla trú svo að eg fjöllin úr stað færði, en hefða ekki kærleikann, þá væri eg ekkert. Og þó að eg gæfa allar mínar eigur fátækum og eg yfirgæfi minn líkama svo að eg brynni og hefða ekki kærleikann, þá væri mér það engin nytsemd. Kærleikurinn er þolinmóður og góðviljaður. Kærleikurinn er eigi meinbæginn. Kærleikurinn gjörir ekkert illmannlega. Eigi blæs hann sig upp, eigi stærir hann sig. Eigi leitar hann þess hvað hans er.

Eigi verður hann til ills egndur, hann hugsar ekki vondslegt. Eigi fagnar hann yfir ranglætinu, en fagnar sannleikanum. Hann umber alla hluti, hann trúir öllu, hann vonar allt, hann umlíður alla hluti. Kærleikurinn hann doðnar aldri þótt spádómurinn hjaðni og tungumálunum sloti og skynseminni linni. Því að vorir vitsmunir er sjónhending, og vorar spásagnir er sjónhending. En nær það kemur, sem algjört er, þá hjaðnar það sem sjónhendingin er. Þá eg var barn, talaði eg sem barn, og eg var forsjáll sem barn, og eg hugsaði sem barn. En þá eg gjörðust maður, lagða eg af hvað barnslegt var. Nú sjáu vér fyrir spegilinn að ráðgátu, en þá auglit að augliti.

Nú kenni eg af sjónhending, en þá man eg kenna svo sem eg em kenndur. Nú blífa þó þessi þrjú: trúan, vonin, kærleikinn, en kærleikurinn er mestur af þessum.

← Chapter 80Chapter 82 →