1 Corinthians · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 82 of 174 · about 4 min
[ breyta] Eftirfylgið kærleikanum og kostgæfist í andlegum gjöfum, en þó mest í því að þér mættuð spádóma fyrir segja. Því að hann sem tunguna talar, hann talar eigi mönnum, heldur Guði. Því að honum heyrir enginn, en í andanum talar hann leynda dóma. En hann sem spádóma segir fyrir, sá talar mönnum til betrunar og til áminningar og til hugganar. Sá tunguna talar, hann forbetrar sjálfan sig, en sá sem spádóma segir fyrir, hann forbetrar Guðs söfnuð. Eg vilda að þér kynnið allir %tungur að tala, en þó miklu heldur þér segðuð spádóma fyrir. Því að sá sem spádóma segir fyrir, hann er þeim meiri sem tunguna talar, utan að svo sé hann leggi það út svo að söfnuðurinn fái þar af forbetran.
En nú, góðir bræður, þótt eg kæmi til yðar og talaði tungur hvað væra eg yður gagnlegur nema eg talaði til yðar annaðhvort fyrir opinberan eða fyrir skynsemi eða fyrir spásagnir eða fyrir lærdóm? Er þeim hlutum eigi svo háttað sem hljóða, en lifa eigi, hvort það er nú pípa eður harpa, fyrst það gefur öngvan greinilegan hljóm af sér? Hverninn má þá vitast hvað pípað er eða hvað harpað er? Og ef lúðurinn hefur óskilmerkilegt hljóð, hver man þá vilja búast til bardagans? Líka og þér nær þér talið tungur, utan þér gefið fram skilmerkilega ræðu, hverninn má vitast hvað að talað er. Því að þér talið þá í vind. Sennilega er margt raddarkyn í þessum heimi, og þó er ekkert þeirra mállaust.
Og fyrst eg veit ekki þýðing málsins, þá verð eg þeim sem talar óskiljanlegur, og hann sem talar verður mér óskiljanlegur. Svo og líka þér. Og fyrst þér eruð eftirfylgjarar andlegra gjafa, þá leitið eftir því að forbetra söfnuðinn upp á það þér gefið og fulla nægð. Hvar fyrir sá sem tungu talar, hann biðji svo að hann útleggi það. Því fyrst eg bið með munninum, þá biður og minn andi, en mitt hugskot færir öngvan ávöxt. Hverninn fer þá? Einkum svo það eg vil með andanum biðja, og eg vil biðja í hugskotinu. Sálmana vil eg syngja með andanum, og eg vil sálmana syngja %með hugskotinu.
En þá þú blessar í andanum, hverninn skal þá sá sem í leikmannsins stað stendur amen segja yfir þinni blessan með því hann veit eigi hvað þú segir? Sennilega gjörir þú góðar þakkir, en hinn annar betrast þar eigi af. Eg þakka Guði mínum það eg tala meir tungur en allir þér, og heldur vil eg tala fimm orð í söfnuðum með mínu sinni svo að eg lærði aðra, heldur en tíu þúsundir orða með tungunni. Góðir bræður, verðið engin börn í skilningarsinnunum, heldur verðið börn í illskunni, en verið algjörðir í skilningarsinnunum. Því að í lögmálinu er svo ritað það eg mun með annarlegum tungum og annarlegum vörum tala til lýðs þessa, og eigi munu þeir heldur mig heyra, segir Drottinn.
Þar fyrir eru tungurnar til teikns, eigi þeim sem trúa, heldur vantrúuðum. En spádómurinn er eigi vantrúuðum, heldur trúuðum. Þótt nú allur söfnuðurinn kæmi til samans í einn stað og töluðu allir tungur, en þar gengi inn ólærður leikmaður eða vantrúaður, segðu þeir ekki að þér væruð galdir? En ef þér segðuð allir spádóma fyrir og þar gengi inn einhver vantrúaður eða ólærður, sá yrði þegar af öllum þeim straffaður og af öllum dæmdur. Og þá yrði svo leyndir dómar hans hjarta opinberir og svo væri hann fram fallandi á sitt andlit Guð að tilbiðja, sannarlega það viðurkennandi að Guð sé með yður. Hversu á þá að fara, góðir bræður?
Nú svo oft sem þér komið til samans þá hafi hver yðar einn lofsálm, eða hafi hann lærdóma, eða hafi hann tungur, eða hafi opinberanir, eða hafi útlegging. Og látið allt ske til betrunar. Og ef einhver talar tungur, þá verði það annað hvort af tveimur eða mest af þrimur og það sín á milli svo að einn leggi það út. En ef hann er enginn útleggjari, þá þegi hann í söfnuðinum, tali sér sjálfum og Guði. En spámenn tali tveir eða þrír, og hinir aðrir dæmi um. En ef öðrum birtist, þeim er hjá situr, þá þegi hinn fyrri. Því að allir megi þér spádóma fyrir segja, hver eftir annan, svo að allir læri og allir verði áminntir.
Og andi spámannanna er spámönnunum undirvorpinn því að Guð er eigi Guð vanheiðursins, heldur friðarins svo sem í öllum söfnuðum heilagra. Yðrar húsfreyjur látið þegja í söfnuðunum því að þeim má eigi leyfast að tala, heldur undirgefnar að vera eftir því sem lögmálið vottar. En ef þær vilja nokkuð læra, þá spyrji þær menn sína að því heima. Því að konunni eru það lýti að tala í safnaðinum. Eða er Guðs orð af yður út komið? Eða er það til yðra einnra saman komið? Ef nokkrum þykir það hann sé spásagnamaður eða andlegur, þá viðurkenni sá hvað eg skrifa yður því að það eru boðorð Drottins. En ef nokkur er skynlaus, þá sé hann skynlaus.
Fyrir því, góðir bræður, kostgæfið spádómana að segja og fyrirbjóðið ekki tungurnar að tala. Látið allt siðsamlega og eftir skikkan ske yðar á milli.