The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 83

1 Corinthians · Chapter 12

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 83 of 174 · about 6 min

← Chapter 82Chapter 84 →

[ breyta] En eg minni yður (góðir bræður) á það evangelium sem eg predikaði yður, hvert þér og meðtókuð, í hverju þér og standið, fyrir hvert þér verðið og hjálplegir meður þeim hætti sem eg kunngjörða það yður ef þér hafið því haldið, utan að svo sé þér hafið til ónýts trúað. Því að eg gaf yður í fyrstu hvað eg meðtók, það að Kristur sé líflátinn fyrir vorar syndir eftir ritningunum og það hann sé grafinn og upp aftur risinn á þriðja degi eftir ritningunum og það hann er séður af Kefas og eftir það af hinum tólf. Og enn eftir á var hann séður meir en af fimm hundruð bræðra í senn, af hverjum margir enn lifa til, en nokkrir eru sofnaðir.

Og eftir það er hann séður af Jakobo og síðan af öllum postulunum. En síðast allra, svo sem af öðrum óskaplegum burði, er hann séður af mér. Því að eg em síðstur postulanna, því að eg em eigi verðugur það eg skuli postuli heita fyrir það eg ofsókn veitti Guðs söfnuði. En af náð Guðs er eg það eg er, og hans náð í mér hefir eigi iðjulaus verið, * heldur hefi eg miklu meira erfiðað en allir þeir, ekki eg, heldur sú Guðs náð sem meður mér er. Það sé nú eg eður þeir, þá predikum vér svo, þér hafið og svo trúað. En fyrst að Kristur verður svo predikaður það hann sé upprisinn af dauða, hverninn segja þá nokkrir af yður það upprisa framliðinna sé ekki?

Og fyrst upprisa framliðinna er ekki, þá er Kristur og ekki upp aftur risinn. En fyrst að Kristur er ekki upp aftur risinn, svo er vor predikan ónýt. Þá er og yðvar trúa ónýt, en vér fyndust ljúgvottar Guðs með því vér hefðum vitnað í gegn Guði það hann hefði Kristum upp vakið, þann hann hefði ekki upp vakið, fyrst hinir framliðnu skulu eigi upp rísa. Því ef framliðnir skulu eigi upp rísa, þá er og Kristur ekki upp aftur risinn. En ef Kristur er eigi upp aftur risinn, þá er yðar trúa ónýt, svo eru þér þá enn í yðrum syndum. Þá eru og hinir, sem sofnaðir eru í Kristo, fortapaðir. Og ef vér vonum alleinasta í þessu lífi á Kristum, svo erum vér hinir vesulustu allra manna.

En nú er Kristur upp aftur risinn af dauða og frumkveðill vorðinn þeirra sem sofnaðir voru. Af því að fyrir manninn kom dauðinn, og fyrir manninn kom upprisa framliðinna. Því að líka svo sem þeir dóu allir fyrir Adam, svo verða þeir og allir lífgaðir fyrir Kristum. En hver einn í sinni skikkan: frumkveðillinn er Kristur og þar næst þeir sem Krists eru í hans tilkomu, þar næst endalokin, þá hann hefir ofurgefið ríkið Guði feður. Og þá mun hann afmá allan höfðingsskap, herrastétt og valdsstjórnan. En honum byrjar að ríkja þar til hann leggur alla óvini undir sína fætur. En þann síðasti óvin, sem afmáður verður, er dauðinn. Því að honum hefir hann alla hluti undir sína fætur gefið.

Og þá hann segir það að allt sé undirlagt, þá er það opinbert að sá er undantekinn sem honum hefir alla hluti undirlagt. En nær honum eru allir hlutir undirgefnir, þá mun og sjálfur sonurinn undirgefast þeim sem honum undirgaf alla hluti svo að Guð sé allt í öllum hlutum. Hvað gjöra þeir elligar sem skírast upp yfir framliðnum? Ef að hinir framliðnu skulu öngvaneginn upp aftur rísa, hvar fyrir skírast þeir þá upp yfir þeim? Og hvar fyrir eru vér þá allar stundir í háskasemd? Daglegana dey eg fyrir vora hrósan, hverja eg hefi í Drottni vorum Jesú Kristo. Því hafi eg eftir mannlegri venju barist við skógdýrin í Efeso, hver nytsemd er mér það þá ef að hinir framliðnu skulu eigi upp aftur rísa?

Etu vær og drekkum því að á morgun deyju vér. Látið eigi tæla yður. Því vont samtal spillir góðum siðum. Vaknið réttlega og syndgist ekki. Því að sumir þér vitið ekkert af Guði, en yður til vanvirðu tala eg þetta. Nú mætti einhver segja: Hverninn munu hinir framliðnu upp rísa? Og með hvílíkum líkama munu þeir koma? Þú drussi, það er þú sáir, lifnar ekki utan það deyi áður. Og það þú sáir, er ekki sá líkami sem verða skal, heldur bert korn, annað hvort hveitis eða einhvers annarra. En Guð gefur því líkam eftir því hann vill og sérhverju einu af fræinu eiginlegan líkama. Allt hold er eigi líka háttað hold, heldur er annað hold mannanna, annað dýranna, annað fiskanna, enn annað fuglanna.

Þar eru og himneskir líkamar og jarðneskir líkamar. Enn aðra dýrð hafa hinir himnesku, enn aðra hinir jarðnesku. Annan bjartleik hefir sólin, en annan bjartleik tunglið, annan bjartleik hafa og stjörnurnar því að önnur stjarnan yfirvinnur aðra í bjartleika. Svo og upprisa framliðinna. Því að það sem sáð verður forgengilegt, mun upp aftur rísa óforgengilegt. Og það sáð verður í vansemd, mun upp aftur rísa í vegsemd. Það sáð verður í breyskleika, mun upp aftur rísa í krafti. Og það sáð verður kjötlegur líkami, mun upp aftur rísa andlegur líkami.

Höfum vér nú kjötlegan líkama, þá höfu vér og andlegan líkama svo sem að skrifað er það hinn fyrsti maður, Adam, sé gjörður í eðlilegt líferni og hinn síðari Adam í andlegt líferni. En hinn fyrsti er eigi andlegur líkami, heldur eðlilegur og eftir það er hinn andlegi. Hinn fyrsti maður af jörðunni er jarðlegur, en hinn annar maður er Drottinn af himnum. Og hvílíkur hinn jarðneski er, svo eru og hinir jarðnesku, og hvílíkur hinn himneski er, svo eru og hinir himnesku. Og líka svo sem vér höfum borið líking hins jarðneska, svo munu vér og bera líking hins himneska.

En þar segi eg af, góðir bræður, það hold og blóð getur eigi eignast Guðs ríki, og hið forgengilega mun eigi eignast hið óforgengilega. Sjáið, að eg segi yður leyndan dóm það vér munum eigi allir sofna, en þó munu vér allir umskiptilegir verða og það næsta skyndilega á einu augabragði við hinn síðasta lúðurþyt. Því að lúðurinn mun gjalla, og hinir framliðnu munu upp rísa óforgengilegir, og vér hinir munum umskiptilegir verða. Því að þetta hið forgengilega hlýtur að klæðast því hinu óforgengilega, og þetta hið dauðlega hlýtur að skrýðast hinu ódauðlega.

En þá þetta hið forgengilega skrýðist hinu óforgengilega og þetta hið dauðlega klæðist hinu ódauðlega, uppfyllist það mál sem skrifað er að dauði er forsvelgdur í sigran. Dauði, hvar er þinn broddur? Helvíti, hvar er þín sigran? En dauðans broddur er syndin. Kraftur syndarinnar er lögmálið. En Guði sé þakkir sem oss hefir sigurinn gefið fyrir Drottin vorn Jesúm Kristum. Fyrir því, bræður mínir, verið staðfastir og óhræranlegir og aukist ætíð í verki Drottins með því þér vitið að yðvart erfiði er eigi ónýtt í Drottni.

← Chapter 82Chapter 84 →