1 Corinthians · Chapter 13
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 84 of 174 · about 2 min
[ breyta] En af þeirri stuðning sem ske skal við hina heilögu, svo sem að eg hefi boðið söfnuðunum í Galatia, þá gjöri þér og líka. Og einhvern þvottdaga þá leggi hver yðar hjá sjálfum sér og saman safni hvað honum er bærilegt svo að eigi þurfi, þá eð fyrsta er eg kem til, þessari stuðning saman að safna. En þá er eg kem þar, vil eg senda þá þaðan hverja helst þér kjósið til með bréfin svo að þeir flytji yðra góðvild til Jerúsalem. Og ef þess gjörist þörf að eg ferðist þangað, þá skulu þeir með mér fara. En eg mun koma til yðar þá eg fer um Makedóníam því að um Makedóníam mun eg ferðast.
En má vera að eg blífi hjá yður og sé þar einninn um veturinn svo að þér gjörið mína útför hvert sem eg kann ferðast. Nú vil eg eigi sjá yður í þessari yfirferð því að eg vona það eg muni um stundar sakir tefja hjá yður ef Drottinn lofar. En í Efeso mun eg dveljast allt til hvítasunnu því að mér er þar miklar dyr opnaðar og þeir eru kostgæfnir, en margir eru þar mótmælendur. Og þá Tímóteus kemur til yðar, sjáið svo til hann sé utan ótta hjá yður því að hann rekur Drottins eyrindi svo sem að eg. Fyrir því forsmái hann enginn, heldur leiðið hann út í friði svo að hann komi til mín. Því að eg bíð hans með bræðrunum.
En af Appollo bróður (þá vitið) það eg hefi áminnt hann marga vega að hann kæmi til yðar með bræðrunum. En það var með öngu móti hans vilji það hann kæmi nú, en hann mun koma þá hann fær tóm til. Vakið og standið í trúnni, berið yður karlmannlega að og verið styrkvir. Alla yðra hluti látið ske í kærleika. En eg áminni yður, góðir bræður. Þér kennið heimkynni Stefani það þeir eru frumburðir þeirra í Akkaia, og sjálfir hafa þeir skikkað sig til þjónustu við heilaga upp á það þér séuð og þvílíkum undirgefnir og öllum sem þeim samverka og erfiða. En eg fagna af tilkomu Stefana og Fortunati og Akkaíki því hvað mig vantaði á hjá yður, það uppfylltu þeir því að þeir endurnærðu minn anda og yðvarn.
Fyrir því viðurkennið þá fyrir þess háttar menn. Yður heilsar söfnuðurinn í Asía. Yður heilsar mikillega í Drottni Akvílas og Priskilla með þeim söfnuði í þeirra húsi. Yður heilsa allir bræður. Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Eg, Páll, heilsa yður með minni hendi. Og ef sá er nokkur hann elski ekki Drottin vorn Jesúm Kristum, þá sé hann %anathema maharam motha. Náð Drottins vors Jesú Kristi sé með yður. Minn kærleiki sé með yður öllum í Kristo Jesú. Amen. Hinn fyrri pistill til þeirra í Korintíuborg, sendur út af Asía fyrir Stefanon og Fortunatum og Akkaíkon og Tímóteon.