2 Corinthians · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 85 of 174 · about 3 min
[ breyta] Páll postuli Jesú Kristi fyrir Guðs vilja og Tímóteus bróðir. Þeirri Guðs safnan í Korintio samt öllum heilögum þeim að eru í öllu Akkaia. Sé náð og friður með yður af Guði vorum föður og Drottni Jesú Kristo. Blessaður sé Guð, faðir vors Drottins Jesú Kristi, hver að er faðir miskunnsemdanna og Guð allrar hugganar, sá oss huggar í allri vorri hryggðan svo að vér getum og huggað þá, sem eru í allsháttuðum hryggðum, meður þeirri huggan þar vér verðum með af Guði huggaðir. Því að líka svo sem að gnæfa harmkvælingar Krists í orr, svo og líka gnæfir vor huggan fyrir Kristum. En hvort að vér höfum hryggð eður huggan, þá sker það yður til góða.
Er það hrygging, þá sker það yður til hugganar og heilsugjafar (hver heilsugjöf að auðsýnir sig ef þér á þann máta meður þolinmæði líðið líka sem það vér liðum). Er það huggan, svo sker það yður til hugganar og hjálpræðis. Og vor von er staðföst fyrir yður af því að vér vitum það að líka sem þér eruð hluttakarar vorðnir hryggðanna, svo munu þér og verða hluttakendur hugganarinnar. Því að vér viljum eigi dylja fyrir yður, góðir bræður, vora hryggð, hverja oss skeði í Asía. Því að vér vorum ódæmilega forþyngdir og yfir megn fram svo að vér örvæntum einninn lífi að halda, órskurðandi það með sjálfum oss að vér ættum að deyja.
En það skeði þar fyrir að vér settum ekki vorn trúskap á sjálfa oss, heldur upp á þann Guð er dauða upp vekur, hver oss hefir frelsað af þvílíkum dauða og nú daglega frelsar og enn vonum það að hann muni oss frelsa hér eftir fyrir tilstyrk yðrar fyrirbónar fyrir oss svo að fyrir þá gáfu, sem oss er gefin, fyrir margar persónur ske mikil þakkargjörð. Því að vor hrósan er það: Vitnan vorrar samvisku það vér höfum í einfaldleik og Guðs skærleika, eigi í holdlegri visku, heldur í Guðs náð gengið í heiminum, en einna mest hjá yður. Því að vér skrifum yður ekki annað en það þér vitið áður þá þér lesið það.
En eg vona það þér munuð kenna oss svo allt til endaloka svo sem þér hafið og kennt oss af nokkri álfu. Því að vér erum yðar hrósan líka svo sem að þér eruð og vor hrósan á degi Drottins Jesú. Og upp á þvílíkan trúskap þenkta eg nú síðast að koma til yðar upp á það þér öðluðust tvefaldar velgjörðir, og eg ferðaðist fyrir yður í Makedóníam og kæmi úr Makedónía aftur til yðar og verði svo af yður á veg leiddur í Júdeam. En hafi eg léttferli framið, þá er eg hugleidda slíkt, eða er mín fyrirhugsan kjötleg? Eigi svo, heldur hjá mér er já já og nei er nei. En trúlyndur er Guð því að vor orð voru eigi til yðar já og nei.
Því að sonur Guðs, Jesús Kristur, sá að fyrir oss er á meðal yðar predikaður fyrir mig og Silvanum og Tímóteum, hann var eigi nei og já, heldur var það já í honum. Því að öll Guðs fyrirheit eru já í honum og eru %amen í honum Guði til dýrðar fyrir oss. En Guð er það sem oss staðfestir samt yður í Kristo og oss hefir smurt og innsiglað og í vor hjörtu gefið vissu andarins.