The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 86

2 Corinthians · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 86 of 174 · about 2 min

← Chapter 85Chapter 87 →

[ breyta] En eg ákalla Guð til vitnis upp á mína sál það eg þyrmda yður í því að eg em ekki kominn aftur til K erum vér tilhjálpendur yðvars fagnaðar. Því að þér standið í trúnni. Eg þenkta og með sjálfum mér það að koma eigi aftur til yðar meður hryggð. Því ef svo er að eg hryggi yður hver er hann þá, sá að mig gleður utan einasta sá sem af mér verður hryggur gjör? Og það hið sama skrifaði eg yður svo að eg þyrfti eigi hryggur að vera þá eð eg kæma, af hverju eg ætta þó glaður að vera með því að eg treysti þess til yðar allra það að minn fögnuður sé allra yðar fögnuður.

Því að eg skrifaði yður til í mikilli hryggð og hjartans trega með mörgum tárföllum, eigi það þér skylduð hryggvir verða, heldur það þér skylduð kenna þann kærleika sem eg hefi sérdeilis til yðar. En þótt einhver hafi hryggðan upp byrjað, sá hefir ekki mig hryggt, heldur einasta í nokkurn máta upp á það að eg þyngda yður eigi alla. En það nægir að sá sami er af mörgum svo straffaður upp á það þér fyrirgefið honum nú héðan af því framar og huggan veitið svo að hann sökkvist ekki í of miklan hryggleik. Hvar fyrir að eg beiði yður það þér auðsýnið á honum kærleik. Því fyrir það skrifaði eg yður til, það eg kennda yðra raun, hvort að þér væruð hlýðugir í öllum greinum.

Og hverjum sem þér fyrirgefið nokkuð, þeim fyrirgef eg og. Því eg einninn, svo ef eg fyrirgef nokkrum eitthvað, það fyrirgef eg yðar vegna í Krists augliti svo að vér verðum eigi tældir af andskotanum því að oss er eigi óvitanlegt hvað hann hefir í skapi. En þá er eg kom til Tróada að predika Krists evangelium og mér voru dyr upp loknar í Drottni, hafða eg eigi hvíld í mínum anda það eg fann ekki Títon, minn bróður, heldur gjörði eg minn skilnað viður þá og fór burt í Makedóníam. En Guði sé þakkir, sá eð alla tíma gefur sigurinn í Kristo og fyrir oss opinber að ilming sinnar kynningar í öllum áttum.

Því að vér erum Guði góð ilming í Kristo bæði á meðal þeirra, sem hjálpast og meðal þeirra, sem fortapaðir verða, þessum ilmur dauðans til dauða, en hinum ilmur lífsins til lífs. Og hver er hæfilegur til þessa? Því að vér erum ekki svo sem margir aðrir, þeir eð Guðs orð forblanda, heldur svo sem af skærleika og svo sem af Guði tölum vér fyrir Guðs augliti í Kristo.

← Chapter 85Chapter 87 →