The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 87

2 Corinthians · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 87 of 174 · about 2 min

← Chapter 86Chapter 88 →

[ breyta] Tökum vér enn aftur til að hæla sjálfum oss? Eða þurfu vér líka svo sem að nokkrir hólsbréfanna til yðar eður hólsbréfin af yður? Þér eruð vort bréf, skrifað í vorum hjörtum, sem auðkennt og lesið verður af öllum mönnum. Þér sem augljósir eruð vorðnir það þér eruð bréf Kristi til reiddir fyrir predikunarembætti og af oss skrifaðir, eigi meður bleki, heldur meður anda Guðs lifanda, eigi á steinsspjöldum, heldur á holdlegum spjöldum hjartans.

En slíkan trúskap þá höfum vér fyrir Kristum til Guðs, eigi svo það vér séum af sjálfum oss neytir nokkuð að hugleiða svo sem af sjálfum oss til, heldur ef vér erum nokkuð neytir, þá er það af Guði, sá að oss gjörði neyta fram að flytja embætti hins nýja testamenti, eigi bókstafsins, heldur andans. Því að bókstafurinn deyðir, en andinn lífgar. En fyrst það embætti, sem fyrir bókstafinn deyðir og á steinum er grafið, hafði bjartleik svo að Íraelssynir gátu eigi litið í ásjánu Moysi fyrir bjartleika sakir hans andlits, sem þó tekur enda, hverninn skyldi þá ekki miklu meir það embætti, sem andann gefur bjartleik, hafa.

Því fyrst það embætti, sem fyrirdæmingina boðar, hefir birti, miklu framar hefir þá það embætti, er réttlætið boðar, yfirgnæfanlegan bjartleik. * Því að í suman máta það sem birt var, þá er fyrir öngva birti haldanda í gegn þessari yfirgnæfanlegri birti. Því fyrst það hafði birti, sem enda tekur, miklu framar mun þá það hafa birti sem stöðugt blífur. Af því vér höfum nú slíka von, þá erum vér djarfir í nóg og gjörum eigi svo sem Moyses gjörði, hver eð fortjald hengdi fyrir sína ásján svo að Íraelssynir fengu eigi litið ending þess er enda tók, heldur eru þeirra hugskot forblinduð.

Því að allt til þessa dags blífur það sama fortjald tillukt yfir því gamla testamento þann tíð sem þeir lesa það, hvert að fyrir Kristum tók enda. Því að enn allt til þessa dags þá Moyses verður lesinn, hengur það fortjald fyrir þeirra hjörtum. En ef þeir snerust til Drottins, svo yrði það fortjald í burt tekið. Því að Drottinn er andi, en hvar andi Drottins er, þar er frelsi. Og nú speglar sér í öllum oss bjartleiki Drottins meður óhuldri ásján, og vér verðum svo í þeirri samri mynd upp birtir frá birtu til birtu svo sem af anda Drottins.

← Chapter 86Chapter 88 →