The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 88

2 Corinthians · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 88 of 174 · about 2 min

← Chapter 87Chapter 89 →

[ breyta] Hvar fyrir á meðan vér höfum nú svoddant embætti svo sem að vér höfum miskunnsemi til öðlast, þá tregumst vér ekki, heldur afsegjum vér einninn heimuglegar skammir og förum eigi með fláttskap, forblöndum og ekki Guðs orð, heldur með opinberum sannindum og auðsýnum oss hægan viður allar samviskur manna fyrir Guði. Er nú vort evangelium hulið, þá er það hulið í þeim sem fortapaðir verða, í hverjum að %Guð þessarar veraldar þá hefir forblindað hugskot vantrúaðra svo þeim skíni eigi uppbirting þessa evangelii Krists dýrðar, hvert að er Guðs ímynd. Því að vér predikum ekki sjálfa oss, heldur Jesúm Kristum það hann sé Drottinn, en vér yðrir þjónar Jesús vegna.

Því að sá Guð er ljósinu bauð úr myrkrinu að skína, hann hefir birtuna gefið í vor hjörtu til uppbirtingar og viðurkenningar Guðs bjartleika í andliti Kristi Jesú. En þennan tesaur höfu vér í jarðlegum kerum svo að hæðin kraftarins sé Guðs og eigi af oss. Alla vega líðum vér hryggðanir, en vér hryggjunst þó eigi, oss veitir torvelt, en vér örvílust eigi, vér líðum ofsókn, en vér verðum eigi fyrirlátnir, vér verðum niðurþrykktir, en vér fyrirförunst eigi. Og ætíð beru vér um kring deyðing Drottins Jesú á vorum líkama svo að einninn og það líf Drottins Jesú opinskárt verði á vorum líkama.

Því að vér, sem lifum, verðum jafnan í dauða seldir Jesús vegna svo að einninn það líf Jesú opinskárt verði á voru dauðlegu holdi. Fyrir því verkar nú dauðinn í oss, en lífið í yður. En á meðan það vér höfum þann sama anda (eftir því að skrifað er: Eg trúði, og fyrir það tala eg) og vér trúum, fyrir því tölum vér einninn og vitum það að sá sem Drottin Jesúm hefir upp vakið að hann muni oss og upp vekja fyrir Jesúm og mun skikka oss þar meður yður. Því að allt þetta sker yðar vegna svo að sú yfirgnæfanlega náð fyrir margra þakkagjörð vegsami Guð ríkulegana. Fyrir því letjunst vér ekki, heldur þótt það minn ytri maður fordjarfist, þá mun þó sá hinn innri dag frá degi endurnýjast.

Því að vor hryggð, sem stundleg og létt er, útvegar oss yfir allan máta eina eilífa dýrðarvog er eigi álítum hið sýnilega, heldur á hið ósýnilega. Því að hvað sýnilegt er, það er stundlegt, en hvað ósýnilegt er, það er eilíft.

← Chapter 87Chapter 89 →