The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 89

2 Corinthians · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 89 of 174 · about 4 min

← Chapter 88Chapter 90 →

[ breyta] Því vér vitum þótt vort jarðneska hús þessarar byggingar verði niður brotið það að vér höfum bygging af Guði upp byggða, hús eigi með höndum gjört það ævinlegt er á himnum. Því að þar eftir forlengir oss einninn vorri íbygging, sem er af himni, girnandist henni að yfirklæðast svo að vér finnust klæddir og eigi nöktir. Því á meðan vér erum í þessu hreysi, þá forlengir oss og erum þyngdir að því vér vildum fegnir eigi nöktir, heldur yfirklæddir verða upp á það hið dauðlega burt svelgdist af lífinu. En hann, sem oss býr til þess hins sama, er sá Guð sem oss hefir gefið pantinn andarins.

En jafnan þá erum vér með góðum huga og vitum það á meðan vér byggjum í þessum líkam, þá eru vér ekki heima hjá Drottni. Því göngu vér í trúnni og ekki í augsjón. En vér erum með góðum huga og höfum miklu meiri góðvild til að vera fjarlægir af líkamanum og nálægir hjá Drottni. Fyrir því kostgæfum vér og einninn hvort vér erum heima nálægir eða í fráverum fjarlægir það vér þókknust honum. Því vér hljótum allir að opinberast fyrir dómstóli Krists upp á það að hver einn öðlist það á sínum líkam eftir því hann hefir aðhafst, sé það gott eða illt. Því vér vitum það Drottinn er óttandi, þá föru vér í hægð að við lýðinn.

En Guði erum vér opinberir, eg vona og einninn það vér séum og í yðrum samviskum opinberir svo að vér lofum eigi sjálfa oss að nýju, heldur það að vér gefum yður tilefni að hrósa af oss upp á það þér hafið nokkru að hrósa í móti þeim sem hrósa sér eftir yfirlitum og ekki eftir hjartanu. Því eru vér æðismiklir, svo eru vér það Guði, eru vér gæfir, þá eru vér yður gæfir. Því að Krists kærleiki þvingar oss af því vér höldum það þar fyrir. Fyrst að einn hefir fyrir alla dáið, þá sé þeir allir dauðir. Og því hefir hann fyrir alla dáið svo að þeir, sem lifa, lifi eigi sjálfum sér, heldur honum sem fyrir þá hefir dáið og upp aftur risinn. Þar fyrir kennum vér nú hér eftir öngvan eftir holdinu.

Þótt að vér höfum einninn kennt Kristum eftir holdinu, þá kennu vér hann þó nú eigi svo lengur af því. Er nokkur í Kristo, þá er hann ný skepna, hið gamla er umliðið. Sjáið, allt er það nýtt vorðið, en allt það af Guði, hver oss forlíkti við sjálfan sig fyrir Jesúm Kristum og gefið oss það embætti sem forlíkunina predikar. Því að Guð var í Kristi og forlíkti veröldina viður sjálfan sig, tilreiknandi henni eigi sínar syndir og hefir upp reist vor á meðal orðið af forlíkuninni. Svo eru vér nú sendiboð af Krists álfu því að Guð áminnir fyrir oss. Þar fyrir biðjum vér yður fyrir Kristum.

Látið forlíka yður við Guð því hann hefir þann sem af öngri synd vissi fyrir oss að synd gjört upp á það vér yrðum það réttlæti sem fyrir Guði dugir. Sétti kapítuli [ breyta] En vér áminnum yður svo sem meðhjálpara það þér meðtakið ekki Guðs náð til ónýtis. Því hann segir: Í þægan tíma heyrða eg þig, og á degi hjálpræðisins hjálpaði eg þér. Sjáið, nú er sá þægilegi tími, nú er dagur hjálpræðisins. Látum oss því gefa öngum hindran upp á það vort embætti verði eigi lastað, heldur augsýnum oss sjálfa í öllum hlutum svo sem Guðs þénara.

Í mikilli þolinmæði, í harmkvælum, í háskasemdum, í þyngslum, í húðstrokum, í fjötrum, í upphlaupum, í erfiði, í vöku, í föstu, í hreinlífi, í viðurkenning, í biðlundargæði, í hógværi, í helgum anda, falslausum kærleika, sannleiksins orði, í Guðs krafti, fyrir herklæði réttlætisins til hægri og vinstri handar, fyrir vegsemd og vansemd, fyrir vanrykti og gott rykti, svo sem falsarar og þó sannarlegir, svo sem ókunnigir og þó kunnigir, líka svo sem þeir eð deyja, og sjáið, það vér lifum, svo sem hegndir og eigi líflátnir, svo sem syrgjendur, þó jafnan glaðir, svo sem volaðir, en þó sá margan auðgar, líka sem þeir eð ekkert hafa og þó eignast alla hluti. * Ó, þér í Korintíu, vor munnur hefir sig opnað til yðar.

Vort hjarta er glatt. Vorra vegna þurfi þér ekki tvistir að vera. En það þér eruð tvistir, það gjörið þér út af hjartgróinni meiningu. Við yður tala eg svo sem við börn mín að þér hegðið yður svo og einninn viður mig og séuð líka glaðir. Togið ekki okið meður vantrúuðum. Því að hverja hluttöku hefir réttlætið með ranglætinu? Eða hvert samlag hefir ljósið við myrkrin? Eða hverja samtengd hefir Kristur við Belíal? Eða hvert hlutskipti hefir trúaður með vantrúaðum? Hverja samlíking hefir Guðs musteri við skurgoðahús? En þér eruð musteri Guðs lifanda eftir því sem Guð segir: Eg man byggja í þeim og ganga þeirra á meðal, eg man og vera þeirra Guð, og þeir skulu minn lýður vera.

Þar fyrir gangið út frá þeim og fráskiljið yður, segir Drottinn. Og snertið ekki það óklárt er, þá mun eg meðtaka yður og vera yðar faðir, og þér skuluð vera mínir synir og dætur, segir Drottinn almáttugur.

← Chapter 88Chapter 90 →