2 Corinthians · Chapter 6
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 90 of 174 · about 5 min
[ breyta] Á meðan vér höfum nú þvílík fyrirheit, kærustu vinir, þá förum til og hreinsum oss af allri saurgan holdsins og andans og áfram förum meður helguninni í guðshræðslu. Höndlið oss. Öngum gjörðu vér mein, öngum gjörðu vér skaða, öngvan drógu vér á tálar. Þetta segi eg ekki yður til fordæmingar. Því að eg hefi áður sagt það þér eruð í voru hjarta samt til að deyja með og að lifa með. Glaður tala eg við yður, mörgu hrósa eg af yður. Uppfylltur em eg hugganar, yfirgnæfanlegur em eg í allri vorri hryggðan. Því þá vér komum í Makedónía, hafði vort hold öngva ró, heldur í öllu liðu vér hryggðan, hið ytra í baráttu, hið innra í óttablendni.
En Guð, sá er huggar lítilmagnana, hann huggaði oss fyrir tilkomu Títi. En eigi alleinasta fyrir hans tilkomu, heldur einninn fyrir þá huggan þar hann var af yður meðhuggaður, kunngjörandi oss yðra forlenging, yðvarn ekka, yðra kostgæfni um mig svo að eg gleð mig enn meir. Því það eg hryggða yður fyrir bréfið, iðrar mig ekki. Og þótt mig iðraði það, kann vera fyrst að eg sé að það bréf hefir aðeins um stundarsakir hryggt yður, svo gleð eg mig nú þó, eigi af því það þér voruð hryggvir, heldur það þér voruð hryggvir til iðranar. Því að þér eruð guðlega hryggvir vorðnir svo að þér fenguð öngvan skaða af oss í neinu.
Því að guðleg hryggðan verkar iðran til hjálpræðis þá er öngvan iðrar, en þessa heims hryggðan verkar dauða. Sjáið, það þér eruð guðlega hryggvir vorðnir, hverja alúð það hefir með yður verkað, þar að auk forsvar, heift, ótta, forlengtan, vandlætan, hefnd. Og í öllum hlutum þá hafi þér auðsýnt yður að þér eruð skírir þess verks. Fyrir því þó að eg skrifaði yður, þá er það ekki hans vegna skeð, sem reitingina framdi, og ekki hans vegna, sem reittur er, heldur þess vegna það yðar kostgefni við oss opinber yrði hjá yður fyrir Guði. Af því þá erum vér vorðnir huggaðir það þér eruð huggaðir.
En þó höfum vér enn yfir allt fram glatt oss meir yfir fögnuði Títi því að hans andi er á nýju endurnærður til allra yðar. Því hvað eg hefi hrósað af yður fyrir honum, í því verð eg eigi vanvirtur, heldur líka svo sem að allt það er sannleiki hvað eg hefi við yður talað, svo er og einninn vor hrósan hjá Títo sannleikur vorðinn. Og honum er af hjarta öldungis vel til yðar þá er hann hugleiðir hlýðni allra yðarra, hverninn þér hafið af ótta og skjálfta hann meðtekið. Eg gleð mig og það eg má alls góðs til yðar treysta. Áttandi kapítuli [ breyta] Eg kunngjöri yður, kærir bræður, þá Guðs náð, sem gefin er safnaðinum í Makedónía, því að þeirra fögnuður var þá yfirgnæfanlegur.
Þann tíð þeir urðu fyrir mörg harmkvæli reyndir og þótt að þeir voru næsta fáskrúðaðir, þá hafa þeir þó ríkulega gefið í öllum einfaldleik. Því að eftir öllu megni (það vitna eg) og yfir megn fram voru þeir sjálfviljugir og beiddu oss með mörgum áminningum það vér meðtækjum þá góðgjörð og samlag nauðþurftarinnar, sem þeim heilögum veittist, og eigi sem vér vonuðum, heldur gáfu þeir í fyrstu sjálfa sig Drottni og oss eftir það fyrir Guðs vilja sakir það vér hlutum að áminna Títum eftir því hann hafði áður upphafið, svo skyldi hann og fullenda slíka velgjörð yðar á milli.
En líka sem þér yfirgnæfið í öllum greinum, í trúnni, í orðum, í viðurkenningunni og í allri kostgæfni og í yðrum kærleika til vor, svo afrekið einninn það þér yfirgnæfið og í þessari velgjörð. Eg segi ekki sem bjóði eg það, heldur á meðan það að hinir aðrir eru svo kostgæfnir, þá reyni eg yðvarn kærleika hvort hann er af réttum huga í því þér vitið náð vors Drottins Jesú Kristi, þá, Þótt hann væri ríkur, varð hann þó volaður yðar vegna upp á það þér yrðuð fyrir hans fátækt auðugir. Og mína ráðþægni gef eg í þessu því að þetta er yður nytsamlegt.
Þér sem upp hafið byrjað fyrir tólf mánuðum eigi einasta gjörninginn, heldur jafnvel viljann, því fullkomnið nú og einninn gjörninginn upp á það líka sem að þar er hneigilegur hugur til viljans svo sé þar og einninn hneigilegur hugur til gjörningsins af því sem þér hafið til. Því fyrst hann er góðviljaður, þá er hann þakknæmur eftir því sem hann hefir til, en eigi eftir því hann hefir ekki.
Eigi sker það í þá meining það aðrir hafi hvíld, en þér hrelling, heldur að það sé líka svo að yðar gnægð þjóni þeirra þurft í þessari hallæristíð upp á það að þeirra gnægð eftir á þjóni yðvarri þurft og það ske hvað líkt er, sem að skrifað er: Þann er miklu safnaði hafði ekkert afgangs, og sá er litlu safnaði, hann hafði öngvan brest. En Guði sé þakkir sem slíka fyrirhyggju hefir gefið í hjarta Títi til yðar. Því að hann meðtók að sönnu þá áminning, en með því hann var svo mjög kostgæfinn er hann af sínum eigin vilja til yðar farinn. En vér sendum með honum vorn bróður, þann er lof hefir í evangelio um allar samkundur.
Og eigi alleinasta það, heldur er hann einninn skikkaður út af samkundunum oss til förunauts til þessarar velgjörðar, sem fyrir oss verður saman söfnuð Drottni til sæmdar, og að gæta þess það enginn mætti eftir oss segja nokkuð vont slíkrar auðigrar næringar hálfu, sem fyrir oss verður saman dregin, og vakta að það færi sæmilega, eigi alleinasta fyrir Drottni, heldur einninn líka fyrir mönnum. Svo höfum vér og sent með þeim bróður vorn, þann vér höfum oft reynt í mörgum greinum það hann sé kostgæfinn, en nú miklu kostgæfnari.
Og vér höfum mikið traust á yður, sé það Títus vegna (sem er minn lagsmann og hjálparmaður yðar á milli) eður vegna vorra bræðra (hverjir að eru postular samkundanna og dýrðar Krists) fyrir því hafið í ljósi auðsýning yðvars kærleika og vorrar hrósanar um yður viður þessa einninn í augliti safnaðanna. [