The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 91

2 Corinthians · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 91 of 174 · about 2 min

← Chapter 90Chapter 92 →

] [ breyta] Því af þessari næringarbjörg, sem þeim heilögum sker, er mér eigi þörf á að skrifa yður til um því að eg veit yðvarn góðan vilja, hvar af eg hrósa hjá þeim úr Makedónía og segi það Akkaia er fyrir tólf mánuðum reiðubúin. Og yðart eftirdæmi hefir marga til knúið. En eg hefi af því þessa bræður hingað sent svo það vor hrósan út af yður yrði ei að öngu í þeirri grein og þér séuð reiðubúnir líka svo sem að eg hefi sagt út af yður svo að ef þeir úr Makedónía kæmu meður mér og fyndi yður óviðurbúna svo vér (eg vil eigi segja þér) verðum ekki skammaðir með slíkri hrósan.

En eg hefi álitið það fyrir nauðsyn að áminna bræðurna það þeir færi fyrst til yðar að reiðubúa þessa áðurlofaða blessan það hún sé til reiðu svo sem það sé blessan, en engin ágirni. En eg segi það hver hann sáir sparlega, sá mun sparlega uppskera, og hver hann sáir niður í blessanum, sá mun og einninn í blessanum uppskera, hver einn eftir sínu hugboði, eigi meður óvilja eður kúgan því að hýran gjafara hefir Guð sér kæran. Því Guð er máttugur að gjöra það allsháttuð náð sé gnógleg meðal yðar svo að þér hafið allsgnægð í öllum hlutum og yfirgnæfið í öllum góðum verkum. Svo sem að skrifað er: Hann útdreifði og gaf fátækum, hans réttlæti blífur um aldir alda.

En sá er sæðið gefur kornsæðaranum, sá mun og gefa brauðið til fæðslunnar, hann mun og margfalda yðvart sæði og aukast láta frjóvgan yðvars réttlætis það þér séuð auðugir í öllum hlutum með allan einfaldleik sem fyrir oss verkar þakkargjörð Guði. * Því að sú næringarstoð þessarar bjargar uppfyllir ekki alleinasta þá nauðþurft heilagra, heldur yfirgnæfir einninn í því það margir þakka Guði fyrir þessa vora trúa þjónustu og prísa Guð yfir yðvarri hlýðugri viðurkenningu Krists guðsspjalla og yfir yðvarri einfaldlegri hjálparstoð til þeirra og til allra og yfir þeirra bænum fyrir yður, hverja að forlengir eftir yður fyrir sakir þeirrar yfirgnæfanlegrar Guðs náðar í yður.

En Guði sé þakkir fyrir sína óumræðilega gáfu.

← Chapter 90Chapter 92 →