The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 92

2 Corinthians · Chapter 8

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 92 of 174 · about 6 min

← Chapter 91Chapter 93 →

[ breyta] En eg, Páll, beiði yður fyrir góðgirnd og hógværi Krists, sá sem að í nálægð er lágur yðar á milli, en í fjarska em eg þanninn djarfur við yður. Því bið eg yður það mér sé ekki þörf nálægum djarflega að höndla og þá djörfung frammi hafi sem mér verður til lögð viður suma þeir oss akta sem gengu vér eftir holdsins plagsið.

Því þótt vér göngum í holdinu, þá skríðum vér þó eigi eftir holdlegum plagsið því að herskrúði vors riddaraskapar er eigi holdlegur, heldur máttugur fyrir Guði til niðurbrots þeirri staðfestu, hvar með vér niður brjótum þá ásetning og alla hæð sem að sig upp hefur í gegn Guðs viðurkenningu og að herfangi tekur alla skynsemd undir Krists hlýðni og erum reiðubúnir að hefna allrar óhlýðni þá er yðar hlýðni er uppfyllt. Dæmi þér eftir áliti. Treystir nokkur þar upp á það hann sé Krists, þá þenki sá einninn þetta hjá sjálfum sér, það líka sem að hann heyrir Kristi til, svo heyru vér einninn Kristi til.

Og þó að eg hrósaði mér nokkuð framar út af þeirri vorri makt sem Drottinn hefir oss gefið yður til betrunar og ekki til fordjörfunar, þá munda eg þó ekki til skammar verða. En þetta segi eg upp á það þér látið yður ei þykja sem hefða eg viljað skelfa yður með bréfum. Því að þau bréfin (segja þeir) eru þung og sterk, en nálægð líkamans er veik og málið forsmánarlegt. Hver þess konar er, hann þenki það líka sem vér erum með orðin í bréfunum í fráverunni, svo dirfunst vér einninn að vera með gjörninginum í nálægðinni. Því að vér dirfunst ekki að reikna oss eður telja meðal þeirra sem sig sjálfir lofa.

En með því þeir meta sig hjá sjálfum sér og halda svo einasta nokkuð út af sér sjálfum, þá undirstanda þeir ekkert. En vér hrósum oss ekki yfir mál fram, heldur alleinasta eftir skammti þeirrar reglu þar eð Guð hefir oss þann skammt með afmetið: Að geta náð einninn allt til yðar. Því að vér fórum ekki of langt í frá svo sem að hefðu vér eigi náð getað allt til yðar. Því vér erum komnir allt til yðar meður Krists guðsspjöllum og hrósum oss ekki fram yfir það mál í annarlegu erfiði og vonum nú nær yðar trú frjóvgast í yður það vér munum víðara komast eftir vorri reglu og predika einninn þetta evangelium þeim sem hinumegin yðar búa og hrósa oss ekki í því sem með annarlegri reglu er tilbúið.

Ellifti kapítuli [ breyta] En hver sér hrósar, sá hrósi sér í Drottni. Því fyrir það er enginn reyndur það hann lofar sig sjálfur, heldur það Drottinn lofar hann. Gæfi Guð þér þylduð mér litla eina fávisku til góða, að sönnu þolið þér mér hana til góða. Því eg vanda um við yður með guðlegu vandlæti því að eg hefi fastnað yður einum manni svo að eg í hendur selda Kristi skírlífa mey.

En það óttunst eg að líka sem höggormurinn tældi Evu með sinni fláræði, svo líka megi og fordjarfast yðar hugskot og af falla í frá þeim einfaldleik, sem að er í Kristo, í því ef sá sami, sem til yðar kemur, predikaði einn annan Jesúm, þann vér höfum ei predikað, eða ef þér meðtækið annan anda, þann þér höfðuð ekki meðtekið, elligar annað evangelium, það þér höfðuð ekki meðtekið, þá umliðu þér þá réttlega. Því að eg held það eg sé eigi minni heldur en þeir hinir æðstu postular eru. Og þótt eg sé fáfróður í málinu, þá em eg þó eigi fáfróður í viðurkenningunni því eg em hjá yður öldungis vel kenndur.

Eða hefi eg syndgast í því það eg minnkaða mig svo að þér upphefðust því að eg hefi kunngjört yður þetta evangelium fyrir ekkert? Og því hefi eg svipt aðrar samkundur og verðlaunin frá þeim tekið, það eg predikaði yður. Og þann tíð eg var hjá yður nálægur og mig skorti, var eg öngum þungur því mína nauðþurft uppfylltu þeir bræður sem komu af Makedónía. Og í öllum hlutum gætta eg mín að vera utan þyngsla við yður, og svo vil eg gæta mín héðan í frá. Því svo sannarlega sem Krists sannleikur er í mér, þá skal mér þessi hrósan í héruðum Akkaia ekki tilstífld verða. Hverninn þá það? Að eg skylda eigi elska yður? Guð veit það.

En hvað eg gjöri og vil gjöra, það gjöri eg fyrir það að eg afkvisti þeim það tilefni, sem tilefnis fara á leit, það þeir mættu hrósa sér að þeir sé svo sem vér. Því að þess háttar falspostular og sviksamlegir erfiðismenn umvenda sér til Krists postula. Og það eru eigi undur því sjálfur andskotinn umsnýr sér stundum til ljóssins engils. Fyrir því er það eigi mikils vert þótt hans þénarar umvendi sér einninn til réttlætisins predikara, hverra endalok munu verða eftir þeirra verkum. Eg segi nú enn aftur það enginn meini það eg sé fávís. En ef eigi þá meðtakið mig sem annan fávísan svo það eg hrósi mér einninn nokkuð lítið.

Hvað eg tala nú, það tala eg eigi svo sem í Drottni, heldur svo sem í fávisku. Með því vér erum í hrósunina komnir, að því margir hrósa sér eftir holdinu, vil eg einninn hrósa mér því að þér umlíðið gjarnan fáfróða með því þér eruð sjálfir vitrir. Þér umlíðið þótt nokkur hneppi yður í þrælkan, þótt nokkur skammyrði yður, þótt nokkur taki frá yður, þótt nokkur hrokist upp við yður, þótt nokkur slái yðra ásjánu. Þetta segi eg eftir óvirðing svo sem að væru vér breyskvir vorðnir. Í hverju helst sem það nokkur er djarfur (eg tala í heimsku), þá em eg einninn djarfur. Þeir eru ebreskir, eg einninn. Þeir eru Íraelíti, eg einninn. Þeir eru Abrahams sæði, eg einninn.

Þeir eru Krists þénarar (eg tala heimskulega). Eg em miklu framar. Eg hefi meir erfiðað, eg hefi meiri högg liðið, eg em oftar fanginn verið, oftar í dauðans hættu. Af Gyðingum hefi eg fimm sinnum féngið xl slög einu færra, þrisvar sinnum em eg húðstrýktur, einu sinni grýttur, þrisvar hefi eg skipbrot liðið, dag og nótt var eg í sjávardjúpi.

Oft þá hefi eg í ferðum verið, eg em verinn í háskasemdum til vats, í háskasemdum meðal morðingja, í háskasemdum millum Gyðinga, í háskasemdum meðal heiðinna, í háskasemdum í borgum, í háskasemdum á eyðimörku, í háskasemdum á sjó, í háskasemdum meðal falskra bræðra, í eymdum og erfiði, í miklum vökum, í hungri og þorsta, í miklum föstum, í kulda og klæðleysi. Fyrir utan það sem hið innra kann við að bera, einkum það eg daglega verð yfirrunninn, berandi áhyggju fyrir öllum söfnuðum. Hver er veikur og að eg verði eigi veikur? Hver verður svo hneykslaður að eg stikna ekki? Ef eg skal þó hrósa mér, þá vil eg hrósa mér míns breyskleika.

Guð og faðir vors Drottins Jesú Kristi, sá blessaður er um aldir, veit það eg lýg ekki að til Damasko það landstjórnari konungsins Areta lét geyma borgina Damaskum og vildi láta grípa mig. Og eg varð látinn út um vindaugað í ofan fyrir múrinn og svo flýða eg úr hans höndum.

← Chapter 91Chapter 93 →