The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 93

2 Corinthians · Chapter 9

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 93 of 174 · about 3 min

← Chapter 92Chapter 94 →

[ breyta] Þó að hrósunin sé mér ekki nytsamleg, þá vil eg þó koma við sjónirnar og opinberingar Drottins. Eg þekki mann í Kristo. Fyrir fjórtán árum var hann í líkamanum? Það veit eg eigi. Eða var hann utan líkama? Veit eg eigi. Guð veit það. Sá sami varð rykktur allt upp í hinn þriðja himin. Og eg þekki glöggt þann mann - hvort hann var í líkama eður utan líkama, veit eg eigi, Guð veit það -hann varð upp rykktur í Paradís og heyrði óumræðileg orð, þau sem enginn mann fær út talað. Af þessu vil eg mér hrósa, en af sjálfum mér til vil eg eigi hrósa mér nema einasta míns breyskleika. Og þótt að eg vilda mér hrósa, gjörða eg ekki fyrir það fíflslegana því að eg vil segja sannleikinn.

En eg sporna við því þar fyrir það enginn haldi mig æðra en svo sem hann á mér sér eða af mér heyrir. Og svo að eg stæri mig ekki af mikilleik þessara opinberinga er mér gefinn %fleinn í holdið, einkum andskotans eyrindreki, hver mig með knefum slær upp á það eg stæri mig ekki, um hvað eg hefi beðið Drottin þrisvar það hann víki í burt frá mér, og hann sagði til mín: Lát þér nægja mína náð því að minn kraftur er í breyskum máttugur. Fyrir það vil eg sem fegnastur hrósa mér míns breyskleika svo að kraftur Krists byggi meður mér. * Fyrir því em eg góðhugaður í breyskleikum, í vanvirðingum, í nauðum, í ofsóknum, í þrengingum Krists vegna. Því nær eg em breyskur, þá em eg öflugur.

Eg em fífl vorðinn af þeirri hrósan. Þar hafi þér þvingað mig til. Því að eg skylda lofast af yður af því að eg em öngvan mun minni en hinir æðstu postular hverninn þó að eg sé ekkert af því þar eru postulateikn gjörð yðar á milli í allri þolinmæði, í táknum, í stórmerkjum og kraftaverkum. Því í hverju er það að þér eruð minni háttar en aðrar samkundur nema alleinasta í því það eg veitta yður eigi sjálfur neinn þunga? Fyrirlátið mér þann glæp. Sjáið, eg em reiðubúinn í þriðja sinn að koma til yðar, og eg vil eigi vera yður þungur að því eg spyr eigi eftir yðru, heldur að yður. Því börnin eiga öngvar nægtir foreldrunum saman að draga, heldur foreldrarnir börnunum.

En eg vil sem fegnastur gefa mig út og útgefinn verða fyrir yðrar sálir hversu sem eg elska yður mjög og eg þó lítt elskaður verð. En látið svo vera það eg hafi ekki gjört yður þyngsl, heldur með því eg var slægur, veidda eg yður með slægðum. En hefi eg nokkurn á tálar dregið fyrir einhvern þeirra sem eg senda til yðar? Eg áminnta Títum og sendi með honum einn bróður. Hefir Títus nokkuð tælt yður? Höfu vér ekki í einum anda og í sömu fótsporum gengið? Látið yður nú þykja aftur það vér forsvörum oss við yður. Vér tölum í Kristo fyrir Guði. En allt þetta sker yður, mínir kærustu, til betranar.

Því eg óttunst, ef að eg kem, það eg finni yður ekki svo sem að eg vil og þér finnið mig ekki einninn sem þér viljið svo þar sé ekkert hat, agg, reiði, þræta, bakmælgi, kvis, hrokaskapur og órói yðar á milli svo að þá er eg kem það Guð niðurlægi mig enn aftur að nýju hjá yður og eg hljóti ekka að líða yfir mörgum þeim er áður höfðu syndgast og öngva yfirbót gjörðu fyrir þann óhreinleik, hóranir og óráðvendi sem þeir hafa framið.

← Chapter 92Chapter 94 →