The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 94

2 Corinthians · Chapter 10

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 94 of 174 · about 2 min

← Chapter 93Chapter 95 →

[ breyta] Komi eg í þriðja sinn til yðar, svo skal í tveggja eður þriggja votta munni standa öll málaferli. Eg sagða yður það áður fyrir, og eg segi yður það fyrirfram svo sem nálægur í annað sinn og skrifa yður það nú til fjarlægur sem áður til forna höfðu syndgast og öllum hinum öðrum: Því ef eg kem aftur í annað sinn, vil eg eigi spara af því þér leitið eftir það þér einnhvern tíma verðið varir þess sem í mér talar, einkanlega Krists sem ekki er breyskur yðar í milli, heldur máttugur er meðal yðar. Og þótt hann sé krossfestur í breyskleika, þá lifir hann þó af Guðs krafti. Og þó að vér séum einninn breyskvir í honum, þá lifum vér þó með honum í Guðs krafti meðal yðar.

Reynið yður sjálfir hvort þér eruð í trúnni. Reynið yður sjálfir eða þekki þér ekki sjálfir yður það Jesús Kristur er í yður? Nema það sé að þér séuð gæskulausir. En eg vona að þér þekkið það vér erum eigi gæskulausir. En eg bið þess Guð að þér hafist ekkert vont að, eigi upp á það að vér sýnunst gæskufullir, heldur upp á það þér gjörið hið góða og vér séum svo sem þeir hinir gæskulausir. Því að vér megum ei nokkuð í gegn sannleikanum, heldur fyrir sannleikinn. Því gleðju vér oss, þá vér erum breyskir, en þér eruð máttugir.

Og það sama æskjum vér einninn, einkum yðra algjörvi, hvar fyrir eg skrifa slíkt fráverandi svo að eg þurfi ekki, þá eg em nálægur, harðindi fram að hafa eftir þeirri makt sem Drottinn hefir mér til betrunar, en ekki til fordjörfunar gefið. Hvað að auk er, góðir bræður, gleðjið yður. Verið fullkomnir, hugstyrkið yður, verið samlyndir, verið friðsamir. Þá man Guð friðarins og ástseminnar vera með yður. Heilsið hver öðrum innbyrðis með heilögum kossi. Yður heilsa allir helgir. Náð vors Drottins Jesú Kristi og Guðs kærleiki og samtenging heilags anda sé með yður öllum. Amen. Sá annar pistill til þeirra í Korintíu, sendur frá Filippen í Makedónía fyrir Títon og Lúkam.

← Chapter 93Chapter 95 →