The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 95

Galatians · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 95 of 174 · about 2 min

← Chapter 94Chapter 96 →

[ breyta] Páll einn apostuli, eigi af mönnum né heldur fyrir manninn, heldur fyrir Jesúm Kristum og Guð föður, sá hann upp vakti af dauða, og allir þeir bræður sem meður mér eru. Söfnuðunum í Galatia. Náð sé með yður og friður af Guði föður og vorum Drottni Jesú Kristo sem sjálfan sig hefir út gefið fyrir vorar syndir það hann frelsaði oss í frá þessari nálægri vondri veröld eftir Guðs vilja og vors föðurs, hverjum að sé dýrð um aldir alda, amen. Mig undrar það að þér létuð svo snart snúa yður í frá þeim sem yður kallaði í náðina Krists upp á annað evangelium sem þar er þó ekkert annað utan það að þar eru þeir nokkrir sem yður villa og umsnúa vilja Krists evangelio.

En þó að vér eða engill af himni predikaði yður annað evangelium en það vér höfum predikað yður, sá sé bölvaður. Svo sem vér sögðum nú í stað, svo segjum vér enn aftur að nýju það ef nokkur predikar yður annað evangelium en það þér hafið meðtekið, sé sá bölvaður. Predika eg það nú mönnum eða Guði til þjónustu? Eða þenki eg mönnum þekkur að vera? Því ef eg hefði hingað til mönnum þekkur verið, þá væri eg ekki Krists þénari. En eg kunngjöri yður, kærir bræður, að það evangelium, sem af mér er predikað, er ekki af mönnum. Því að eg hefi það af öngum manni meðtekið né lært, heldur fyrir opinberan Jesú Kristi.

Því að þér hafið vel heyrt mitt athæfi forðum daga í júðadómnum það eg ofsókti yfirmáta Guðs safnan og fram yfir marga mína jafningja í mínu kyni og vandlætti yfirmáta um feðranna setninga. En þá það þókknaðist Guði, sá mig hefir skilið í frá minnar móður kviði og kallað fyrir sína náð, það hann opinberaði í mér sinn son svo að eg skylda kunngjöra hann meðal heiðinna þjóða. Og jafnsnart fór eg eigi til og hafða tal af holdi og blóði og eigi kom eg aftur í Jerúsalem til þeirra sem fyrri mér voru postular, heldur fór eg burt í Arabíam og kom svo aftur til Damasko. Eftir það að þremur árum liðnum kom eg til Jerúsalem að sjá Petrum, og eg staðnæmdist hjá honum fimmtán daga.

En annan af postulunum sá eg öngvan nema Jakobum, bróður Drottins. Og það eg skrifa yður, sjáið, Guð veit það eg lýg ekki. Eftir það kom eg í landsálfur Sýrie og Kilitie. En eg var ókenndur að yfirliti Krists söfnuðum í Júdea. En þeir höfðu alleinasta heyrt það, sá oss áður til forna ofsókti, hann predikar nú trúna, hverja hann áður sturlaði, og vegsömuðu Guð yfir mér.

← Chapter 94Chapter 96 →