Galatians · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 96 of 174 · about 3 min
[ breyta] Síðan eftir fjórtán ár dró eg upp aftur til Jerúsalem meður Barnaba og tók einninn Títum meður mér. En eg fór upp þangað eftir opinberan og hafði tal við þá um það evangelion eð eg predikaði meðal heiðinna þjóða, en sérlega þó við þá sem álitið höfðu svo að eg hlypa ekki forgefins eða hlaupið hefði. Og Títus, sá meður mér var, þrengdist eigi heldur til að láta umskera sig þótt hann væri girskur. Því að þá eð nokkrir falskir bræður höfðu sér með innþrengt og þar jafnframt innlæðst til að skoða vort frelsi, hvert vér höfum í Jesú Kristo, svo það þeir þrælkuðu oss, þá viku vér þeim ekki til stundar undirgefinn að vera upp á það að sannleikurinn evangelii staðnæmdist hjá yður.
En af þeim sem álitið höfðu - hvað þeir voru fyrr meir, varðar mig öngu því að Guð skeytir ekki áliti mannsins - en mig hafa þeir, sem álitið höfðu, ekki annað lært. Heldur þar í mót þann tíð þeir sáu það mér var tiltrúað það evangelion til yfirhúðarinnar líka svo sem Pétri það evangelion til umskurnarinnar því að sá með Pétri er verinn kröftugur til postulaembættis meðal umskurnarinnar, sá sami er einninn meður mér kröftugur verinn meðal heiðinna þjóða.
Og þeir Jakobus, Kefas og Jóhannes (viðurkenndu þá náð sem mér var gefin) sem fyrir stöplana voru álitnir, gáfu mér og Barnaba hendur og samtóku með oss það vér predikuðum á meðal heiðinna þjóða, en þeir á meðal umskurðarins, utan einasta það vér hugleiddum volaða, hvað eg lagða allt kapp á að gjöra. En þá Pétur kom til Antiokkiam í mót, stóð eg hann undir augum því að sakferli var yfir hann komið. Af því að áður - til forna - en það nokkrir komu í frá Jakobo, þá át hann með heiðingjum, en þá þeir komu, forðaði hann sér og fráskildi sig þeim af því hann óttaðist þá af umskurninni. Og þeir aðrir Gyðingar hræsnuðu með honum svo það Barnabas varð einninn afvegaleiddur í þeirra hræsni.
En þá eg sá það þeir gengu eigi rétt eftir sannleik guðsspjallsins, sagða eg til Péturs fyrir öllum opinberlega: Fyrst þú, sá sem ert Gyðingur, lifir sem heiðingjar og eigi sem Gyðingar, hvar fyrir þvingar þú þá hina heiðnu til að lifa sem Gyðingar? Þótt að vér séum af náttúru Gyðingar og öngvir syndarar út af heiðnum þjóðum, en á meðan vér vitum það maðurinn verður ekki réttlátur fyrir lögmálsins verk, heldur fyrir trúna á Jesúm Kristum, svo trúum vér og einninn á Kristum Jesúm upp á það vér verðum réttlátir fyrir trúna á Kristum og ekki fyrir verkin lögmálsins. Fyrir því verður fyrir verkin lögmálsins ekkert hold réttferðugt.
En skyldu vér, hverjir eftirleitum fyrir Kristum réttlátir að verða, nú einninn sjálfir syndugir fundnir verða, þá væri Kristur einn syndaþénari. Það sé fjarri. Því ef eg byggi það upp aftur hvað eg hefi niðurbrotið, þá gjöri eg mig sjálfan að yfirtroðslumanni. Því eg em fyrir lögmálið lögmálinu dáinn svo að eg lifi Guði. Eg em með Kristi krossfestur, en eg lifi, nú þó ekki eg, heldur lifir Kristur í mér. Því hvað eg lifi nú í holdinu, það lifi eg í trúnni Guðs sonar, sá mig hefir elskað og sjálfan sig út gefið fyrir mig. Eigi snara eg Guðs náð á burt. Því ef fyrir lögmálið kemur réttlætið, þá er Kristur forgefins dáinn.