Galatians · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 97 of 174 · about 3 min
[ breyta] Þér skynsemdarlausir Galati, hver hefir töfrað yður það þér hlýdduð ekki sannleiknum, hverjum þó Jesús Kristus var fyrir augum málaður og nú á meðal yðar krossfestur er? Það alleinasta vil eg nema af yður hvort þér hafið meðtekið andann fyrir verkin lögmálsins eða fyrir predikun[in]a af trúnni. Eru þér svo skynlausir? Hvað þér hafið upp byrjað í andanum, því vilji þér nú í holdinu áfram halda. Hafi þér þá liðið svo margt fyrir ekki? -ef það er annars fyrir ekki. Sá sem yður gefur nú andann og gjörir slíka gjörninga meðal yðar, gjörir hann þá fyrir verkin lögmálsins eða fyrir predikun[in]a af trúnni? Líka svo sem Abraham trúði Guði og það er honum reiknað til réttlætis.
Svo viti þér nú þá það þeir sem trúarinnar eru að þeir eru Abrahams börn. En ritningin hefir þetta áður til forna fyrir séð það Guð réttláta gjörir hina heiðnu fyrir trúna. Af því kunngjörði hún það Abraham fyrirfram: Í þér skulu allar þjóðir blessaðar verða. Líka svo munu þeir, sem trúarinnar eru, blessast meður hinum trúaða Abraham. Því svo margir sem við lögmálsins verkin fást, þeir eru undir bölvaninni því að skrifað er: Bölvaður sé sá hver sem ekki blífur í öllu því eð skrifað er í lögmálsbókinni svo hann gjöri það. En það að fyrir lögmálið verði enginn réttlátur fyrir Guði, þá er opinbert því að réttlátur lifir af trú sinni.
En lögmálið er ekki af trúnni, heldur sá maður, sem það gjörir, man lifa þar fyrir. En Kristur hefir leyst oss frá bölvan lögmálsins þann tíð hann varð bölvan fyrir oss því að skrifað er: Bölvaður sé sá hver sem á tré hangir, svo að blessan Abrahe kæmi meðal heiðinna þjóða í Kristo Jesú og að vér meðtækjum svo fyrirheitið andans fyrir trúna. Kærir bræður, eg vil tala eftir mannlegum plagsið. Enginn vanrækir mannsins testament (nær það er staðfest) né eykur þar við. Nú eru þó fyrirheitin Abrahe og hans sæði til sögð. Eigi segir hann sæðunum svo sem fyrir mörg, heldur svo sem fyrir eitt, fyrir þitt sáð, hvert að er Kristur.
En eg segi þar af að það testament, sem áður til forna er staðfest upp á Kristum, verður ekki ónýtt gjört svo það fyrirheitið skyldi fyrir lögmálið enda taka, hvert að gefið er fyrir fjórum hundruðum og þrjátigi árum þar eftir. Því ef að arfleifðin yrði fyrir lögmálið afrekuð, þá yrði hún ekki fyrir fyrirheitið gefin, en Guð hefir fyrirheitsins vegna gefið hana Abraham. Hvar til skal þá lögmálið? Það er vegna yfirtroðslunnar tilsett þangað til það sæðið kæmi, hverju fyrirheitið var skeð og er tilsett af englunum fyrir hönd meðalgöngumannsins. En meðalgöngumaðurinn er eigi aðeins einkameðalgöngumaður, en Guð er einn. Hverninn þá? Er lögmálið nú í gegn Guðs fyrirheiti? Það sé fjarri.
Því ef þar væri það lögmál út gefið sem lífgað gæti, sannarlega þá kæmi réttlætið út af lögmálinu. En ritningin hefir það allt innilukt undir syndinni svo að það fyrirheit, sem kemur fyrir trúna á Jesúm Kristum, gæfist trúuðum. En áður sú trúa kom, varðveittust vér undir lögmálinu og inniluktir upp á þá trú sem opinber skyldi verða. Líka svo var lögmálið vor hegningarmaður til Krists svo að vér réttlættunst fyrir trúna. En nú eð trúan er komin, þá erum vér eigi lengur undir þeim tyftunarmanni. Því að þér eruð allir Guðs börn fyrir trúna á Jesúm Krist. Því að svo margir af yður sem eruð skírðir, þér hafið Kristi íklæðst.
Hér er eigi Gyðingur né girskur, hér er eigi þræll né frelsingi, hér er eigi kall né kvinna. Því að þér eruð allir eitt í Kristo Jesú. En fyrst þér eruð Krists, þá eru þér Abrahams sæði og eftir fyrirheitinu erfingjar. *