The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 98

Galatians · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 98 of 174 · about 3 min

← Chapter 97Chapter 99 →

[ breyta] En eg segi: Svo lengi sem erfinginn er barn, þá er á milli hans og þjónsins enginn greinarmunur þó að hann sé herra alls góssins, heldur er hann undir forverurunum og fjárhaldsmönnum allt til ásetts tíma af föðurnum. Líka vér einninn þá vér vorum börn, voru vér þrælkaðir undir þessa heims setningum. En þá uppfylling tímans var komin, útsendi Guð sinn son, fæddan af kvinnu og lögmálinu undirvorpinn, upp á það að hann frelsaði þá sem undir lögmálinu voru svo að vér meðtækjum sonarleifðina. En með því þér eruð börnin, hefir Guð sent anda síns sonar í yðar hjörtu, kallandi: Abba, kæri faðir. Svo er hér nú enginn þræll meir, heldur börn ein.

En eru það börn, þá eru það einninn arfar Guðs fyrir Kristum. En þá þér þekktuð ekki Guð, þjónuðu þér þeim sem af náttúru eru öngvir guðir. En nú þér hafið Guð þekkt (já miklu framar eruð af Guði þekktir) hverninn vendi þér yður þá um aftur til þeirra breyskra og nauðþurftugra setninga, hverjum þér viljið nú aftur að nýju þjóna? Þér haldið daga og mánuði, helgihöld og ártíðir. Eg em óttasleginn um yður það eg hafi (kann vera) til einskis erfiðað hjá yður. Verið svo sem að eg em því að eg em svo sem þér. Kærir bræður, (eg beiði yður) þér hafið ekki neitt mein mér gjört. Því að þér vitið það eg predikaði yður evangelion í fyrsta sinn í veikleika eftir holdinu.

Og mína freistni, sem eg leið eftir holdinu, fyrirlitu þér ekki né forsmáðuð, heldur svo sem annan Guðs engil meðtóku þér mig, já, líka sem Kristum Jesúm. Ó, hó, hve sælir voru þér í það sinni. Því eg ber yður það vitni ef mögulegt hefði verið að þér hefðuð yðar augu út slitið og gefið mér. Em eg þá svo vorðinn yðar óvin það eg segi yður sannindin? Þeir vanda eigi vel um yður, heldur vilja þeir gjöra yður mér frásnúna svo að þér skuluð vanda um þá. Umvandanin er góð nær hún sker ætíð um hið góða, og ekki alleinasta þá eg em nálægur í hjá yður. Mín kæru barnakorn, þau eð eg enn nú aftur í annað sinn með angist fæði þangað til að Kristur ímyndast yður.

En eg vilda það eg væra nú hjá yður og gæti minni raust umskipt því að eg em sorgbitinn yfir yður. Segið mér, þér sem undir lögmálinu viljið vera, hafi þér ekki heyrt lögmálið? Því að skrifað er það Abraham hafði tvo sonu, einn af ambáttinni og einn af eiginkonunni. En sá af ambáttinni var, er fæddur eftir holdinu, en hann af eiginkonunni, er fyrir fyrirheitið fæddur, hver orð eð hafa andlega meining því að þetta eru þau tvö testamenta, eitt af fjallinu Sína það er til þrælkunar fæðir, hver að er Agar. Því að Agar heitir í Arabía fjallið Sína og strekkir sig allt þangað sem nú í þennan tíma er Jerúsalem og er í þrælkan með sínum börnum.

En hin Jerúsalem sem er þar uppi, hún er eiginkonan, hver að er móðir vor því að skrifað er: Vert glöð, hin óbyrja, þú sem ekki fæðir. Brjóst fram og kalla sem ekki ert þunguð. Því að hin einsama hefir miklu fleiri börn en hún er manninn hefur. En vér, kæru bræður, erum Ísaks börn eftir fyrirheitinu. En líka sem í þann tíma að sá eftir holdinu var fæddur, ofsókti þann sem eftir andanum var fæddur svo er það nú einninn. En hvað segir ritningin? Rek burt ambáttina og son hennar því að ambáttarsonurinn skal ekki erfa með syni eiginkonunnar. Svo erum vér nú, kærir bræður, ekki ambáttarinnar börn, heldur eiginkonunnar. *

← Chapter 97Chapter 99 →